Hljómsveitin Plútó kemur í heimsókn í Víðihlíð þriðjudaginn 15.desember og syngur nokkur vel valin jólalög kl. 14.00.
Hljómsveitin Plútó hefur starfað í yfir 20 ár. Flytjendur eru lagnir við að heilla áhorfendur upp úr skónum með flutningi sínum og túlkun á tónlistinni. Stjórnendur eru : Rósa Jóhannesdóttir og Theodór Karlsson.
Hljómsveitarmeðlimir eru:
Ágústa E. Þorvaldsdóttir, Áslaug H. Reynisdóttir, Dagbjört Þórleifsdóttir, Hildur Davíðsdóttir, Hreinn Hafliðason, Ingibjörg R. Bragadóttir, Haraldur V. Ólafsson, Hildigunnur J. Sigurðardóttir, Sæunn Jóhannesdóttir, Rós María Benediktsdóttir.