Glæpasagnahöfundurinn vinsæli Stefán Máni les upp úr Nautinu nýjustu spennusögu sinni á Bókasafni Grindavíkur á morgun, miðvikudaginn 2. desember kl. 20:30. Bókin hefur hlotið afbragðs dóma. Hann hefur gefið út fjórtán skáldsögur frá árinu 1996. Glæpasagan Svartur á leik var tilnefnd til Glerlykilsins árið 2005. Stefán Máni hefur í tvígang hlotið íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, árið 2007 fyrir Skipið og 2013 fyrir Húsið. Báðar bækurnar voru jafnframt valdar sem framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins.
Um Nautið segir: Á rólyndislegum austfirskum sveitabæ gerast skelfilegir atburðir. Með einhverjum hætti tengjast þeir ofsa og persónulegum átökum í undirheimum Reykjavíkur. Fégræðgi og hefndarhugur virðast ráða för. En þegar kafað er dýpra leynast skuggaleg leyndarmál á hverju strái. Hver er ókunni maðurinn sem situr í fangaklefa á Eskifirði? Hvað varð um Hönnu, sveitastelpuna sem stakk af til Reykjavíkur? Er nautið skepna í mannsmynd eða dýrslegur maður?
Allir velkomnir á bókaupplestur!