Í dag verður Fjörugur föstudagur í Grindavík, sem teygir orðið anga sína víða um bæ og lengra en bara á Hafnargötuna þaðan sem hann á uppruna sinn að rekja. Mikið verður um dýrðir og sá viðburður sem margir bíða vafalaust eftir með eftirvæntingu er matarveislan sem verður í boði hjá Þorbirni en þar mæta enskir kokkar og reiða fram dýrindis "fish & chips" fyrir gesti.
Sjónvarp Víkurfrétta tók Eirík Dagbjartsson, útgerðarstjóra hjá Þorbirni, tali og fræddist aðeins um þennan skemmtilega viðburð: