Þessir ungu menn í 6. bekk, Vilberg, Tómas og Alex, notuðu góða veðrið í nóvember og skelltu sér út með málaratrönurnar. Verkefnið í myndmennt var að mála fjall og þá var Þorbjörninn, fallegasta fjallið á Suðurnesjum, auðvitað nærtækast. Metnaðurinn leyndi sér ekki og eigum við örugglega eftir að sjá meira af þessum ungu listamönnum í framtíðinni.