Við á bókasafninu erum í óðaönn að skipuleggja upplestra fyrir komandi jólabókaflóð. Enn sem komið er, eru tveir höfundar búnir að staðfesta komu sína og eru það Lilja Sigurðardóttir og Óskar Guðmundsson. Lilja kemur í heimsókn til okkar mánudaginn 7. desmber með bók sína "Gildran" sem kom út í haust og er í 6. sæti á metsölulista Forlagsins. Óskar kemur svo fimmtudaginn 17. des með bókina "Hilma" sem er hans fyrsta bók og er mjög spennandi glæpasaga að mati undirritaðrar.
Við bendum á viðburði á Facebook síðu safnsins og munum minna ykkur reglulega á viðburði bæði þar og hér.
Kveðja,
Andrea