Sjómaðurinn söngelski, Ellert Heiðar Jóhannsson, komst örugglega áfram í The Voice síðastliðinn föstudag. Lagið sem hann söng var gamli Badfinger smellurinn, Without you. Flestir þekkja þó sennilega betur útgáfu Harry Nilson eða Mariah Carey. Enn aðrir tengja jafnvel við orðin Ken Lee.
Á heimasíðu The Voice Ísland á mbl.is má sjá og heyra flutninginn á laginu en þar segir um frammistöðu Ellerts:
„Ellert Heiðar Jóhannsson heldur sínu striki í lagavali í The Voice, hann ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, en í síðasta þætti söng hann Can‘t Live If Living is Without You sem Mariah Carey gerði frægt á sínum tíma.
Þjálfararnir Salka Sól og Helgi Björns voru bæði mjög hrifin af flutningnum í þætti gærkvöldsins og öryggi Ellerts á sviðinu. „Þú ert svo yfirvegaður, og þú tekur svo þetta lag og bara pakkar því saman," sagði Salka Sól um flutninginn.
Það voru fleiri sama máli en flutningurinn fékk mikla athygli á Twitter, og þá sérstaklega lagavalið.“
Myndir: mbl.is