Við í Laut tókum þátt í verkefninu Jól í skókassa annað árið í röð. Í október sýndum við börnunum myndband af þegar börnin fengu skókassanna í fyrra. Nú svo fóru skókassarnir að streyma inn, sumir komu með tilbúinn skókassa, aðrir komu með hluta af því sem þarf að vera í kassanum og svo komu aðrir með pening. Skapaðist umræða um þá sem eiga um sárt að binda og hvað við gætum gert. Síðan var það sameiginlegt verkefni að fara yfir allar kassanna og að sjálfsögðu afhenda þá. Fleiri myndir á Facebook.