9. fundur umhverfis- og ferðamálanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 11. nóvember 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Gunnar Margeir Baldursson formaður, Anita Björk Sveinsdóttir aðalmaður, Hjörtur Waltersson aðalmaður, Magnús Andri Hjaltason aðalmaður, Jón Emil Halldórsson aðalmaður, Sigurður Óli Hilmarsson áheyrnarfulltrúi ferðaþjónustuaðila, Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Siggeir Fannar Ævarsson Upplýsinga- og skjalafulltrúi og Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Fundargerð ritaði: Siggeir F. Ævarsson, upplýsinga- og skjalafulltrúi.
Dagskrá:
1. 1503173 - Vinnuskólinn: Skipulag 2015
Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kom á fundinn og fór yfir vinnu sumarsins og skipulag næsta árs.
2. 1511021 - Tjaldsvæðið: Skýrsla fyrir starfsárið 2015
Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kom á fundinn og kynnti ársskýrslu um tjaldsvæðið. Umræður um stýringar og mögulega heilsársopnun. Málefnum tjaldsvæðisins vísað til frekar vinnslu og umræðu hjá nefndinni.
3. 1511019 - Markaðsmál: App fyrir Grindavíkurbæ
Siggeir kynnti málið. Nefndin felur honum að skoða málið áfram í samvinnu við hagsmunaaðila á svæðinu.
4. 1506051 - Umhverfisverðlaun 2015
Rætt um hvað hefði mátt betur fara í undirbúningi og framkvæmd.
5. 1501158 - Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Umhverfis- og ferðamálanefnd leggur til að Grindavík Experience verði settir inn sem samráðsaðilar í ferlinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:45