Kvenfélag Grindavíkur hefur sölu á barmmerki félagsins

  • Fréttir
  • 11. nóvember 2015

Á næstu dögum mun Kvenfélag Grindavíkur hefja sölu á barmmerki félagsins, sem ber tákn félagsins og er teiknað af Evelyn Adolfsdóttir sem var mikil kvenfélagskona. Allur ágóði af merkinu rennur í jólaaðstoð líknarfélaga í Grindavík fyrir árið 2015.

 

Merkið heitir „Hið sjáandi auga" sem lýsir einmitt vel hvernig kvenfélagið okkar starfar, við höfum vakandi augu með því hvar þörfin er mest í samfélaginu okkar. Formleg sala á merkjunum hefst í kvennamessunni næstkomandi sunnudag.

Á myndinni selur Guðbjörg Ásgeirsdóttir gjaldkeri Sólveigu Ólafsdóttur formanni fyrsta merkið.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál