Sunnudaginn 8. nóvember var Baráttudagur gegn einelti. Efndum við á Króki í dag til sérstaks átaks í tilefni dagsins með því að hafa mikla umræðu um vináttu og um Hjálparhendur sem við notum mikið í leikskólanum. Börnin æfðu sig að gefa öðrum Hjálparhendur og þiggja Hjálparhendur. Við notum líka Engilráð til að ræða við börnin um hvernig við komum fram við aðra, ræðum um líðan og tilfinningar og er Engilráð mjög góð í að hugga og láta okkur líða betur.
Hjálparhendur eru tæki sem er notað til að kenna börnum að nota snertingu á vinsamlegan og áhrifamikinn hátt. Það leiðir af sér að jákvæð hegðun og samhyggð eykst. Sem dæmi ef einhver meiðir sig eða líður illa þá getur barn eða fullorðinn sett hendur um staðinn sem sársaukinn er á, lokað augunum og sent hlýjar og fallegar hugsanir til þess sem þjáist. Engilráð er brúða sem er á öllum deildum leikskólans og aðstoðar kennara við að kenna börnum um lífsgildi og er hún boðberi náungakærleika og umburðarlyndis.