Grunnskóli Grindavíkur hefur í um áratug tileinkað sér uppbyggingarstefnuna eins og kostur er.
Nemendur í 3. M ásamt umsjónarkennaranum sínum Matthildi Þorvaldsdóttur, voru búnir að vera duglegir að setja upp í stofunni sinni bekkjarsáttmála sem þeir höfðu gert og frammi á gangi mátti líta húsin þeirra þar sem sjá má hvaða þarfir eru þeirra aðalþarfir. Sumir hafa meiri þörf fyrir frelsi, aðrir umhyggju, einhverjir þarfnast mest gleði og enn aðrir áhrifavald eða styrk, þörfin fyrir öryggi er svo ekki langt undan.
Stefnan er frábær uppeldisstefna sem miðar að því að kenna börnum og unglingum,sjálfstjórn og sjálfsaga, að taka ábyrgð á eigin orðum og gerðum og að læra af mistökum í samskiptum og vaxa af því.
Meðal annars gera nemendur þarfagreiningu og vinna að bekkjarsáttmála í samvinnu við foreldra og starfsfólk skólans. Hefur starfsfólk skólans og nemendur náð að tileinka sér mjög margt gott frá þessari aðferð og enn er unnið að því að leita frekari leiða. Alltaf er hægt að gera enn betur. Þegar bekkjarsáttmáli er gerður eru:Reglur skoðaðar heima og í skólanum, þær eru skráðar á töflu. Farið er í hvaða lífsgildi liggja að baki viðkomandi reglu og hvers vegna reglan er mikilvæg. Nemendur skoða í hvernig bekk þeir vilja vera, ræða hvaða hópar hafa ákveðin hlutverk þ.e. mitt og þitt hlutverk, útbúinn er sáttmáli, hann er hengdur upp og allir skrifa undir. Sáttmáli er einnig settur upp í s.k. T og Y spjöld þar sem fram kemur hvað við viljum heyra, sjá og finna í skólaumhverfinu okkar.
Diane Gossen er höfundur uppeldisstefnunnar og hennar skilgreining á stefnunni er meðal annars á þessa leið:
"Að skapa aðstæður til að leiðrétta mistök sín og gera betur
og snúa aftur til hópsins hugdjarfari en fyrr".