Umhverfisverðlaun Grindavíkurbæjar fyrir árið 2015 voru afhent við hátíðlega athöfn í bæjarstjórnarsal Grindavíkur þann 8. september síðastliðinn. Dómnefnd umhverfisverðlaunanna er umhverfis- og ferðamálanefnd sem hafði úr vöndu að ráða þetta árið en garðarnir sem tilnefndir voru voru hver öðrum glæsilegri. Tíðarfar hefur verið með ágætum í Grindavík þetta sumarið og fjölmargir garðar sem stóðu í miklum skrúða í sumarlok. Eftir vettvangsferð og töluverðar vangaveltur nefndarinnar voru eftirfarandi garðar verðlaunaðir:
Verðlaun fyrir fallegan og gróin garð: Leynisbrún 1, eigendur Elísabet Sigurðardóttir og Daníel Júlíusson. Mikil vinna hefur verið lögð í ræktun að Leynisbrún 1 í langan tíma og er trjágróðurinn orðinn ótrúlega þéttvaxinn og fallegur. Þegar Grindvíkingar byrjuðu að planta trjám fyrir nokkrum áratugum heyrðust margar efasemdaraddir og voru fjölmargir sannfærðir um að hér myndi trjágróður aldrei þrífast. Garðurinn að Leynisbrún 1 er lifandi sönnun þess að þeir svartsýnismenn sem héldu þessu fram höfðu heldur betur rangt fyrir sér.
Verðlaun fyrir fallegan og gróin garð: Mánagata 21, eigandi Ingibjörg Reynisdóttir. Garðurinn að Mánagötu 21 var sá garður sem greip dómnefndina strax. Stílhreinn og snyrtilegur og afar vel við haldið. Myndin sem fylgir þessari frétt gefur þó kannski ekki rétta mynd af honum þar sem bakgarðurinn er hápunktur hans. Áhugasamir verða því einfaldlega að banka uppá hjá Ingu og fá að skoða hann með eigin augum.
Verðlaun fyrir vel heppnaða ræktun við erfiðar aðstæður: Vesturhóp 16. Við Vesturhóp 16 blómstrar mikill gróður, ekki bara í garðinum sjálfum heldur líka í hrauninu um kring. Hjónin Þórey Gunnþórsdóttir og Guðgeir Helgason hafa á undraskömmum tíma umbreytt landslaginu í kringum sig í gróðurvin en þeir sem þekkja til aðstæðna í Hópshverfinu vita að þar getur stundum blásið hressilega enda hverfið á endimörkum bæjarins og norðanáttin lendir þar óbeisluð. Það er þó ekki að sjá á gróðrinum í kringum húsið að Vesturhópi 16.
Verðlaun fyrir vel heppnaða endurgerð á gömlu húsi: Geo hótel. Það geta sennilega allir Grindvíkingar verið sammála um að umbreyting á Festi sé ótrúlega vel heppnuð. Þetta fyrrum glæsta hús sem hafði staðið autt og ónotað um árabil hefur nú verið hafið á ný til fyrri vegs og virðingar. Ágúst Gíslason er maðurinn á bakvið þessar breytingar en hann keypti húsið og tók það í gegn frá A-Ö. Nú hýsir það hið glæsilega Geo hótel sem ferðamenn hafa tekið opnum örmum og láta afar vel af bæði aðstöðu þar og þjónustu. Hið nýja Geo hótel er mikil lyftistöng fyrir ferðamennsku í bænum og Grindvíkingar geta á ný verið stoltir af þessu bæjarprýði í hjarta bæjarins sem nú iðar af lífi á ný. Hótelstýran Lóa Bergljót Þorsteinsdóttir veitti viðurkenningunni móttöku en með henni á myndinni er Gunnar Baldursson formaður umhverfis- og ferðamálanefndar Grindavíkurbæjar.
Greinin birtist fyrst í Járngerði, fréttabréfi Grindavíkurbæjar.