Þann 15. október var Fjöreggið 2015 afhent en verðlaunin eru veitt fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði. Meðal þeirra sem hlutu tilnefningu í ár voru Skólar ehf en meðal þeirra leikskóla sem Skólar ehf reka er Heilsuleikskólinn Krókur hér í Grindavík. Um heilsustefnu Króks má lesa á heimasíðu skólans.
Frétt frá skólar.is um tilnefningunni:
„Við erum afskaplega stolt af tilnefningu okkar til Fjöreggsins 2015 en verðlaunin eru veitt af Matvæla- og næringarfræðafélagi Íslands með stuðningi Samtaka iðnaðarins fyrir lofsvert framtak á matvæla- og/eða næringarsviði. Heilsuleikskólarnir okkar fimm starfa allir samkvæmt Heilsustefnunni, sem kennd er við Unni Stefánsdóttur, og hafa jafnframt tekið virkan þátt í þróun verkefnisins Heilsueflandi leikskóli undir forystu Embættis landlæknis. Við leggjum mikið upp úr hollu og fjölbreyttu fæði og erum tilnefnd fyrir Næringarstefnu Skóla ehf., sameiginlega 8 vikna matseðilinn okkar, uppskriftabankann og næringarútreikningana sem honum fylgja.
Aðrir sem hlutu tilnefningu í ár voru:
Búrið
Tilnefnt fyrir skemmtilega og nýstárlega nálgun á íslenska sælkeramarkaðinum. Búrið er í grunninn ostaverslun en hefur þróast út í að vera menningarmiðstöð fyrir ólíka strauma og stefnur í matvælaframleiðslu. Búrið hefur staðið fyrir vinsælum matarmörkuðum og rekur einnig ostaskólann.
Matur og drykkur
Veitingastaðurinn er tilnefndur fyrir að gera íslenska eldhúsinu hátt undir höfði. Hann byggir á gömlum íslenskum hefðum í matargerð með nútímalegri nálgun.
Móðir Jörð
Tilnefnt fyrir að framleiða spennandi íslensk matvæli úr jurtaríkinu. Fyrirtækið byggir framleiðslu sína á sjálfbærni og lífrænt ræktuðu hráefni. Lögð er mikil áhersla á að þróa afurðir úr nánasta umhverfi og hafa fjölmargar nýjungar komið frá Móður Jörð á síðustu árum.
Skaftafell Delicatessen
Tilnefnt fyrir að framleiða sælkeravörur úr kindakjöti úr Öræfum. Vörurnar eru framleiddar án aukefna. Kjötvörurnar sem Klaus Kretzer framleiðir hafa m.a. unnið til brons og silfurverðlauna í Norðurlandakeppni í matarhandverki.
Að þessu sinni hlaut Móðir Jörð verðlaunin.“