Um liðna helgi var haldin stór landsæfing björgunvarsveita norður á Akureyri. Björgunarsveitin Þorbjörn átti þar 12 vaska fulltrúa sem mættu norður ásamt 13 félögum úr unglingadeildinni Hafbjörgu en ungliðarnir tóku að sér að leika sjúklinga á æfingunni. Þessi fríði hópur leysti af hendi rúmlega 20 verkefni útum allan Eyjafjörð og þótti að sögn standa sig með mikilli prýði, eins og þeirra er von og vísa. Flottir fulltrúar Grindavíkur þarna á ferð.
Myndin sem fylgir fréttinni er fengin af Facebook síðu sveitarinnar, við hvetjum Grindvíkinga til að smella einu læki á síðuna og fá þannig fréttir af björgunarsveitinni beint í æð.