Þeir sem ekið hafa Suðurstrandarveginn síðustu vikur hafa tekið eftir fræðsluskiltum sem upp eru komin við Húshólma. Uppsetning fræðsluskiltanna er samstarfsverkefni Grindavíkurbæjar, Minjastofunar og Reykjanes Geopark.
Hópur á vegum alþjóðlegu sjálfboðaliðasamtakanna SEEDS kom skiltunum fyrir í lok ágúst. Hópurinn dvaldi viku í Grindavík og sinnti einnig verkefnum innanbæjar.
Húshólmi er einn merkilegasti minjastaður landsins en þar er að finna afar merkilegar fornminjar. Hólminn er svokallaður óbrinnishólmi í Ögmundarhrauni, niður undir sjó og opnast niður í sjó. Í hólmanum eru mannvistar-leifar sem eru eldri en hraunið sem rann árið 1151, m.a. tveir fornir torfgarðar sem hraunið hefur runnið upp að og yfir. Annar þeirra var hlaðinn fyrir árið 871, er landnámsöskulagið féll, og því eitt elsta mannvirki sem fundist hefur í landinu. Þar má einnig finna húsatóftir sem hraunið hefur runnið að stórum hluta yfir, líklega af stórum bæ og kirkju. Því er haldið fram að þar hafi Krýsuvíkurbærinn staðið frá upphafi fram að gosi áður en hann var fluttur á núverandi stað.
Gönguleiðin frá bílastæðunum við Suðurstrandarveg í Húshólma og meðfram ströndinni til baka tekur 2-3 klukkustundur. Fjögur skilti voru sett upp við bílastæðið, eitt við Húshólmastíg og tvö í hólmanum sjálfum.
Greinin birtist fyrst í Járngerði, fréttabréfi Grindavíkurbæjar