Kæru Grindvíkingar og aðrir góðir gestir. Verið velkomin við formlega opnun á nýrri Íþróttamiðstöð Grindavíkur við Austurveg, laugardaginn 17. október n.k. kl. 15:00.
Dagskrá:
• Formleg vígsla kl. 15:00 á nýja sviðinu fyrir utan aðalinnganginn (ef veður leyfir).
• Íþróttamannvirkið til sýnis
• Boccia eldri borgara í litla sal/anddyri, júdóæfing í Gjánni, aðstoð í tækjasal hjá Gymheilsu, Kvenfélagið með veislu í Gjánni (grillaðar pylsur og tertur), skriðsundskeppni sunddeildar UMFG, skákborð í móttökusal fyrir gesti, fótboltaboltavídeó með Grindavíkurliðunum rúllar á sjónvarpsskjá í anddyri.
• Grindavík-Valur í úrvalsdeild kvenna í körfubolta kl. 16:30 í íþróttahúsinu. Ókeypis aðgangur.
• Í hálfleik: Skrifað undir samninga við UMFG, Golfklúbb Grindavíkur, Hestamannafélagið Brimfaxa og Kvenfélag Grindavíkur.
• Sundlaug opin til kl. 17:00. Ókeypis í sund.