Sett inn ţann 24.08.03
Ţegar jarđskjálftinn sem átti upptök sín viđ Krísuvík reiđ yfir um klukkan 2 í nótt var Kristín Sigurjónsdóttir eigandi verslunarinnar Ađalbrautar í Grindavík nýkomin upp í rúm en var ekki sofnuđ. ?Rétt áđur en ég sofnađi kom svakalegur hávađi og rúmiđ gjörsamlega nötrađi á međan skjálftinn reiđ yfir. Viđ erum međ ljósakrónu í loftinu og hún sveiflađist til,? segir Kristín, en hún segist ekki hafa orđiđ hrćdd. ?Ég er ekki hrćdd viđ jarđskjálfta, en sonur minn kom mikiđ skelkađur inn í herbergi til okkar.? Ađeins eru um 23 kílómetrar frá Krísuvíkurskóla til Grindavíkur ef ekiđ er um Krísuvíkurveg og er ljóst ađ skjálftinn hafi fundist vel í Grindavík eins og Kristín lýsir. Hún segir ađ einn viđskiptavina hennar í morgun hafi sagt sér ađ sonur hennar hefđi dottiđ út úr rúminu í nótt ţegar skjálftinn reiđ yfir. ?Ţó ađ viđ hér í Grindavík séum á svona virku svćđi, ţá finnst mér íbúarnir hér taka ţessu međ ró. Ţađ eru margir sem búast viđ stóra skjálftanum, en ţađ er engin hrćđsla viđ hann hér, allavega ekki sem ég veit um,? sagđi Kristín í samtali viđ Víkurfréttir.