Á miðvikudögum geta börn á yngsta stigi mætt í skák frá kl. 13.50-14.30 og fer kennslan fram í skólastofu í Hópsskóla. Börn í Skólaselinu geta einnig brugðið sér í skákina. Margir vilja meina að skák efli rökhugsun, sjálfsaga og einbeitingu. Ef það reynist rétt eru þegar komin góð rök fyrir því að stunda skák!
Skákkennsla hefur verið í boði í skólanum á síðustu misserum. Kennari frá upphafi hefur verið Siguringi Sigurjónsson. Það er frábær viðbót fyrir nemendur skólans að geta nú stundað skák í skólanum eða í félagsstarfi. Ódýrt er að stunda skák og hún spyr ekki um landamæri. Margir sem ekki hafa notið sín í hefðbundnu námi, hafa fundið sig við skákborðið, náð þar árangri og notið þess að tefla.