35% aukning á tjaldsvćđinu í sumar

  • Fréttir
  • 9. október 2015

Met aðsókn var á tjaldsvæðinu í Grindavík í sumar, frá miðjum maí og til loka september, bæði hvað varðar gesti og gistinætur. Aukningin á gistinóttum á milli ára er um 35% og aukning gesta um 34%. Alls komu 9120 gestir á tjaldsvæðið í sumar frá maí til september en gistinætur voru 10.449. Aukning bara í september var um helming. Hagstætt veðurfar og mikil aukning útlendra gesta hér á landi hafði auðvitað mikið að segja, þá var tjaldsvæðið opnað viku fyrr  og opið út september. Jafnframt fer ekki á milli mála að tjaldsvæðið í Grindavík þykir glæsilegt og þjónustan góð og verð sanngjarnt. Tjaldsvæðið er jafnframt aðili að Útilegukortinu.

Aukningin undanfarin ár hefur verið í kringum 20% á ári en sumarið núna var einstaklega gott.

  • Gistinætur 2015: 10.449
  • Gistinætur 2014: 7.720
  • Gestir 2015: 9.120
  • Gestir 2014: 6.811

 

 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál