Alex Freyr Hilmarsson á reynslu hjá Malmö

  • Knattspyrna
  • 6. október 2015

Hornfirðingurinn knái, Alex Freyr Hilmarsson, sem leikið hefur með Grindavík undanfarin þrjú ár og var valinn besti leikmaður liðsins á lokahófi knattspyrnudeildarinnar á dögunum, er um þessar mundir á reynslu hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Malmö.

Fótbolti.net greindi frá:

„Alex Freyr Hilmarsson, leikmaður Grindavíkur, er þessa dagana á reynslu hjá Malmö í Svíþjóð.

Alex mun æfa með Malmö næstu dagana og á morgun spilar hann leik með U21 árs liði félagsins gegn Hammarby.

Hinn 22 ára gamli Alex Freyr verður samningslaus í haust en nokkur félög í Pepsi-deildinni hafa sýnt honum áhuga.

Í sumar skoraði Alex sjö mörk með Grindavik í 1. deildinni og lagði upp mun fleiri en hann getur leikið á kantinum eða á miðjunni.

Alex kom til Grindvíkinga frá Sindra fyrir sumarið 2012 og hefur verið fastamaður í liðinu síðan þá.

„Alex er miðjumaður sem kemur frá Íslandi og það var yfirnjósnari okkar Vito Stavljanin sem frétti af honum. Hann verður með okkur næstu dagana og síðan sjáum við til hvað gerist," sagði Daniel Andersson yfirmaður íþróttamála hjá Malmö við heimasíðu félagsins.

Malmö leikur í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í ár en Kári Árnason er fyrirliði liðsins.“

 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun