Grindavíkurbær er eitt af öflugustu sveitarfélögum landsins. Fjárhagslega stendur sveitarfélagið mjög sterkum fótum. Skuldir eru mjög lágar og eignir miklar. Rekstur sveitarfélagsins gengur vel og skilar miklum afgangi. Þar sem skuldir eru litlar og greiðslubyrði þar af leiðandi lág getur Grindavíkurbær fjárfest án þess að taka ný lán.
Ársreikningur Grindavíkurbæjar fyrir árið 2014 sýnir þessa stöðu glöggt. Tekjur hækka, íbúum fjölgar og áætlanir standast. Í tvö ár í röð hafa útgjöld til fræðslumála, sem er langstærsti málaflokkur Grindavíkurbæjar, verið á áætlun. Það hefur aldrei gerst áður.
Skýrslur óháðra aðila um íslensk sveitarfélög sýna sömu stöðu. Greiningardeild Arion banka mat Grindavíkurbæ fjárhagslega sterkast af stærstu sveitarfélögum landsins árið 2013. Í skýrslu Íslandsbanka um íslensk sveitarfélög sem kom út í vor má sjá sömu niðurstöður. Grindavíkurbær er með eina sterkustu stöðuna af þeim sveitarfélögum sem teljast hafa litla skuldsetningu og rekstur standi vel undir núverandi skuldsetningu.
Góður rekstur sveitarfélags er ekki sjálfgefinn og er háður nokkrum þáttum. Svo sem;
• Bæjarstjórn þarf að hafa skýra sýn og bera virðingu fyrir því að verið sé að sýsla með almannafé.
• Stjórnendur og starfsfólk þarf að setja fram ábyrgar áætlanir og standa við þær.
• Skatttekjur þurfa að vera góðar, en þær eru háðar efnahag viðkomandi sveitarfélags.
Í Grindavík er gríðarlega öflugt atvinnulíf. Það byggist að mestu á sjávarútvegi, orkuvinnslu og ferðaþjónustu, en allar greinarnar eru í vexti og kalla á fleira starfsfólk. Af því leiðir að laun hafa hækkað og íbúum fjölgað, sem aftur leiðir til þess að útsvarsstofn Grindavíkurbæjar styrkist.
Í skýrslu sem hagfræðideild Landsbankans gaf út 12. júní kom fram að velta fyrirtækja á íbúa í Grindavík er hin fjórða hæsta á landinu.
Sjávarútvegur hefur verið undirstaða samfélagsins í Grindavík um aldir. Fyrirtækin í Grindavík standa undir rúmu 1% af vergri landsframleiðslu og skapa um 1.000 störf.
Í skýrslu Gamma um Auðlindagarðinn á Reykjanesskaga sem kynnt var 28. maí kom fram að Auðlindagarðurinn skapar um 1% af vergri landsframleiðslu. Innan Auðlindagarðsins starfa um 500 manns. Auðlindagarðurinn byggir að mestu á starfsemi sem er innan Grindavíkurbæjar, þ.e. í Svartsengi.
Ljóst er að efnahagsvélin Grindavík skapar gríðarleg verðmæti fyrir þjóðfélagið allt. Sú verðmætasköpun og ábyrgur rekstur sveitarfélagsins leggur grunninn að því að hér eru skattar lægri en víðast hvar annarsstaðar. Þannig njóta allir ágóða af öflugu atvinnulífi og ábyrgum rekstri.
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri
Greinin birtist fyrst í Járngerði fréttabréfi Grindavíkurbæjar 2015.