Í byrjun júní sl. létu af störfum hjá Grindavíkurbæ þær Bjarnfríður Jónsdóttir, sérkennslufulltrúi og Guðný Sigfúsdóttir, þroskaþjálfi en þær störfuðu hjá skóla- og félagsþjónustu Grindavíkurbæjar. Sitja þær nú í helgum steini. Á sama tíma lá fyrir að Ragnhildur Birna Hauksdóttir, leikskólafulltrúi myndi hverfa til annarra verkefna á haustdögum.
Að gefnu tilefni var tekið til skoðunar hvort skynsamlegt væri að endurmeta skipulag skóla- og félagsþjónustu sveitarfélagsins innan ramma þeirra stöðugilda sem fyrir hendi voru.
Í kjölfar þeirrar skoðunar voru gerðar tillögur um breytt skipulag skóla- og félagsþjónustu sveitarfélagsins og þær lagðar fram í fræðslu-nefnd og félagsmálanefnd, auk bæjarráðs.
Helstu breytingar samkvæmt nýju skipulagi eru eftirfarandi:
• Ingibjörg María Guðmundsdóttir, sálfræðingur tekur við aukinni ábyrgð og verkefnum í þjónustu við grunnskóla, þ.m.t. ráðgjöf og eftirlit með faglegum þáttum skólastarfsins.
• Hanna D. Bizouerne hefur verið ráðin í 50% starfshlutfall sálfræðings með þau meginverkefni að sinna greiningu og ráðgjöf barna í leik- og grunnskóla, auk eftirfylgni með úrbót-um og mati á árangri.
• Sigurlína Jónasdóttir, hefur verið ráðin í 60% starfshlutfall leikskólafulltrúa og sinnir að meginstefnu til sömu verkefnum og fráfarandi leikskólafulltrúi, þ.m.t. starfi daggæslufulltrúa sveitarfélagsins. Kemur hún til með að hefja störf 1. nóvember nk og verður kynnt í næsta blaði.
• Þá hefur verið ráðin til starfa hjá sveitarfélaginu Hildigunnur Kristinsdóttir, talmeinafræðingur í 40% starfshlutfalli en þeirri þjónustu var áður sinnt á grundvelli verksamnings. Með tilkomu ráðningarsambands liggur fyrir að unnt sé að auka þennan þjónustuþátt frá því sem var. Að auki verður aðgengi foreldra að þeirri þjónustu talmeinafræðings sem sinnt er á grundvelli sjúkratrygginga greiðari en áður þar sem viðkomandi talmeinafræðingur kemur til með að bjóða upp á slíka þjónustu innan marka sveitarfélagsins.
Þegar framangreindu sleppir er enn svigrúm til að ráða í stöðu sérfræðings hjá félagsþjónustu sveitarfélagsins og hefur verið auglýst eftir starfsmanni með mikla reynslu af vinnslu barnaverndarmála auk þess að geta sinnt sértækri foreldraráðgjöf á grundvelli hugmyndafræði PMTO.
Samhliða hefur ábyrgð á sértækri þjónustu gagnvart fötluðum börnum verið færð undir verksvið Hlínar Sigurþórsdóttur, þroskaþjálfa en þar er m.a. um að ræða þjónustu stuðningsfjölskyldna, skammtímavistanir, sumarúrræði, auk sértækrar ráðgjafar.
Skólasálfræðingur
Hanna Dorothéa Bizouerne er nýr skólasálfræðingur hjá Grindavíkurbæ. Hún hóf störf 14. september og verður í 50% stöðu. Hún kemur frá Reykjavík. Hanna útskrifaðist sem sálfræðingur frá Háskóla Íslands s.l. vor. Hún hefur reynslu frá skammtímavistun sem stuðningsfulltrúi barna með fatlanir. Einnig sem barnasálfræðingur hjá Sálfræðingum Höfðabakka þar sem hún sinnir meðferðarvinnu með börnum og unglingum samhliða störfum í Grindavík. Þar hefur Hanna góða reynslu af ráðgjöf til foreldra yngri barna sem mun nýtast í störfum hennar innan skólanna. Svo hefur Hanna reynslu af starfsnámi á Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins. Hanna kennir í hlutastarfi við HÍ áfanga um foreldraþjálfun. Vinnutími Hönnu er á þriðjudögum og miðvikudögum og svo annan hvern föstudag. Hún hefur viðveru í leik- og grunnskólum samkvæmt ákveðnu skipulagi. Verkefni hennar snúast að greiningum á frávikum nemenda og eftirfylgni með áætlunum í kjölfar greininga.
Talmeinafræðingur
Hildigunnur Kristinsdóttir kemur úr Reykjanesbæ og er nýráðin talmeinafræðingur hjá Grindavíkurbæ. Hún hóf störf 2. september og er í 40% stöðu hjá skólaþjónustunni. Að auki starfar hún sem sjálfstætt starfandi talmeinafræðingur og verður með talþjálfun á föstudögum í Grindavík. Hildigunnur útskrifaðist árið 2007 með BA próf í almennum málvísindum og eftir útskrift starfaði hún sem deildarstjóri á leikskóla í Reykjanesbæ og sem aðstoðarmaður talmeinafræðinga á Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. Árið 2012 útskrifaðist hún með MS í talmeinfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur unnið á stofunni Talþjálfun Suðurnesja frá útskrift og gerir enn samhliða störfum hjá Grindavíkurbæ. Einnig hefur Hildigunnur reynslu frá störfum á Reykjalundi og naut þar hand-leiðslu eftir útskrift. Vinnutími Hildigunnar er á miðvikudögum og fimmtudögum. Þá sinnir hún greiningum og ráðgjöf er varða mál og tal.