Fimmtudaginn 1. október verður Vanda Sigurgeirsdóttir sérfræðingur á ferðinni með fræðslu um samskipti, vináttu og einelti. Vanda hittir nemendur í 4. bekkjunum á skólatíma og kl. 17:00 verður hún með fyrirlestur fyrir foreldra barna í 4. bekkjum. Áhersla er lögð á að fulltrúar frá öllum nemendum mæti á fundinn.