Í Grunnskóla Grindavíkur fer fram metnaðarfullt starf sem er stöðugt í þróun. Sífellt er verið að leita leiða til að hlúa að námsumhverfi nemenda, auka fjölbreytni skólastarfsins og bæta námsárangur. Eitt af meginverkefnum skólaársins er aukið upplýsingastreymi milli skólans og heimilanna. Fyrsta skrefið var þing sem haldið var með foreldrum í júní. Niðurstöður þess eru síðan nýttar í umbótaáætlun sem lögð verður fram og kynnt í fræðslunefnd nú í september.
Á fyrsta skóladegi komu nemendur með foreldrum til viðtals hjá umsjónarkennara. Í þessu viðtali gefst tækifæri til að ræða sérstök málefni sem mikilvægt er að hafa í huga frá fyrsta degi. Í viðtalinu er nemendum hjálpað við að setja sér námsmarkmið í upphafi skólaárs. Samskiptadagar skólaársins eru þrír auk skólasetningardags, í október, janúar og apríl. Í vetur verður lögð áhersla á að auka gæði þessara funda með aukinni virkni nemenda og for-eldra.
Hafragrautur og ný húsgögn
Í samstarfi við Foreldrafélagið er boðið upp á hafragraut alla morgna. Hafragrauturinn er hollur og saðsamur og góð undirstaða fyrir skóladaginn. Skólinn opnar kl. 7:30 á morgnana á báðum starfsstöðvum og fljótlega upp úr því er hægt að gæða sér á hafragraut.
Í samstarfi við Skólamat er unnið að því að breyta fyrirkomulagi matarskömmtunar þar sem lögð verður áhersla á að nemendur skammti sér sjálfir á diska. Þannig aukum við sjálfstæði nemenda og minnkum raðir í mötu-neytinu.
Áfram er unnið að því að gera allt húsnæði skólans nemendavænna. Á hverju ári bætast við sófar og vinnuborð á ganga. Húsgögnin skapa notalega umgjörð um starfið ásamt því að gefa nemendum og kennurum tækifæri til að nýta öll svæði í skólanum til náms.
Ungmennagarður og tölvur
Nokkrar breytingar voru gerðar á skólalóðinni á Ásabrautinni í sumar þegar vinna hófst við Ungmennagarð í samstarfi við ungmennaráð og félagsmiðstöðina Þrumuna. Í sumar voru sett upp aparóla, útigrill og útiskýli. Allt nýtist þetta nemendum í frímínútum auk þess sem þarna skapast meiri möguleikar fyrir kennara að skipuleggja útinám. Þau leiktæki sem tekin voru niður verða geymd hjá áhaldahúsi Grindavíkurbæjar í vetur þar sem þau verða yfirfarin og þeim síðan komið aftur fyrir á nýjum stað á skólalóðinni næsta vor.
Markvisst hefur verið unnið að því að færa tölvumálin í það horf að þau standist kröfur nútímans. Á síðasta skólaári var áherslan á ytri umgjörð og tæknivæðingu kennaranna. Lögð var áhersla á að búa í haginn fyrir flestar tegundir tækja. Við sjáum fyrir okkur í framtíðinni að nemendur geti notað sín eigin tæki og nýtt þau í skólastarfinu samhliða því að nemendur og starfsmenn hafi aðgang að tækjum í skólanum á skólatíma. Áhersla er lögð á ábyrga netnotkun, að fylgjast með nýjustu tækni og nýta tækin í þágu náms. Gerðir eru samningar við nemendur og for-eldra um notkun tækja. Í vetur verður áfram lögð áhersla á að fjölga tækjum sem nemendur hafa aðgang að um leið og nemendur fá tæki-færi til að koma með sín eigin tæki í skólann.
Vinaliðar
Vinaliðaverkefnið sem prufukeyrt var síðastliðið vor gaf góða raun og heldur því áfram í vetur. Markmið vinaliðaverkefnisins er að stuðla að fjölbreyttari leikjum í námshléi að morgni, leggja grunn sem gerir nemendum kleift að tengjast sterkum vinaböndum, minnka togstreitu milli nemenda, hampa góðum gildum, svo sem vináttu, virðingu og því að allir fái að taka þátt. Vinaliðar eru valdir tvisvar á skólaárinu í 2. - 6. bekk í leynilegu vali innan bekkja. Lögð er áhersla á að vinaliðar, sem valdir eru sýni öðrum nemendum bæði vináttu og virðingu. Vinaliðar fá kennslu og þjálfun á leikjanámskeiðum sem Vinaliðaverkefnið stendur fyrir. Á námskeiðunum fá vinaliðarnir fyrirlestra um hvernig þeir geta hvatt aðra nemendur til þátttöku, verið vinalegir og fullir virðingar. Vinaliði ber síðan ábyrgð á því að koma verkfærum og áhöldum á leikstaðina í frímínútum og koma þeim aftur á sinn stað að leik loknum. Haldnir eru reglulegir fundir með vinaliðum þar sem leikir eru skipulagðir. Vinaliðaverkefnið er eitt af uppbyggjandi verkefnum okkar til að bæta skólaandann.
Dans, leiklist, núvitund og jóga
Allir nemendur á yngsta og miðstigi fá í vetur tækifæri til að læra dans. Nemendur 1. - 4. bekkjar fá kennslu í dansi. Nemendur 4. bekkjar fá í vetur skákkennslu einn tíma á viku og í 5. og 6. bekk geta nemendur valið á milli þess að fara í dans eða að tefla einu sinni í viku. Einnig er boðið upp á skákklúbb einu sinni í viku og skákkennarinn er með 1 tíma í viku í tengslum við starfsemi Skólaselsins.
Leiklist er ein af smiðjunum í 6. bekk í vetur. Smiðjutímarnir skiptast því á milli tæknimenntar, textílmenntar, heimilisfræði, myndmenntar og leiklistar. Einnig verður boðið upp á kennslu í framsögn í 4. og 5. bekk í samstarfi við umsjónarkennara. Námskeið í núvitund er í smiðjum í 1. - 3. bekk auk kennslu í myndmennt, textíl og tæknimennt. Núvitundin er hluti af þróunarverkefni sem skólinn tekur þátt í með leikskólanum Króki. Markmið verkefnisins er m.a. að innleiða núvitund í leikskóla og yngstu bekki grunnskóla með það að markmiði að efla tilfinngalegt jafnvægi, jákvæða félagslega hegðun og vellíðan bæði nemenda og kennara.
Hjólakraftur
Hjólakraftur er verkefni sem fór af stað í fyrra í samstarfi við forvarnarnefnd Grindavíkurbæjar og Þrumuna og er framhaldið í vetur. Markmið verkefnisins er að virkja vanvirka einstaklinga og fá þá til að komast upp úr þeim hjólförum sem eru hamlandi. Þátttakendur í Hjólakrafti hjóla tvisvar í viku og lögð er áhersla á samstarf og þátttöku foreldra í verkefninu.
Breytingar á stundatöflum
Í stundaskrárgerðinni settum við okkur þau markmið að samræma lok skóladags á hverju stigi fyrir sig, að hafa föstudaginn stuttan hjá öllum og fækka eyðum hjá elstu nemendum. Á yngsta stigi lýkur kennslu alla daga kl. 13:10, elsta stigið lýkur skóla kl. 15:00 á mánudögum og 14:00 þriðjud. - fimmtud. Starfi á miðstigi lýkur kl. 14:20 einn dag vikunnar, kl. 13:40 þrjá daga. 4. bekkur lýkur skóla alla daga nema föstudaga kl. 13:40. Öllu skólastarfi með nem-endum lýkur kl. 13:10 á föstudögum.
Breytingar á viðmiðunarstundaskrá á elsta stigi
Í aðalnámskrá grunnskóla er að finna viðmiðunarstundaskrá sem hver skóli hefur til viðmiðunar við uppsetningu námsins og skiptingu tíma milli námssviða og námsgreina. Viðmiðunarstundaskráin gerir ráð fyrir ákveðnum mínútufjölda sem nemendur eiga að fá á hverju aldursstigi. Það er síðan hlutverk hvers skóla fyrir sig að útfæra hversu miklum tíma er varið í hverja grein fyrir sig innan þessa ramma. Gert er ráð fyrir sveigjanleika innan námssviða og á milli áfanga en útfærslu á viðmiðunarstundaskrá skal birta í starfsáætlun skólans.
Þær breytingar verða á viðmiðunarstundaskrá elsta stigs í vetur að íslenskutímar verða 5,5 kennslustundir á viku í stað 5 áður auk lestrarstunda sem eru 3 x 20 mínútur í upphafi skóladags. Kennslustundum í stærðfræði fjölg-ar úr 5 í 6. Bætt var inn í stundatöflu verkefnatímum þar sem nemendur hafa aðgang að kennurum og eiga að vinna í verkefnum og/eða heimanámi. í þessum tímum er lögð áhersla á að kenna nemendum að skipuleggja nám sitt. Verkefnatímar eru mislangir frá 20 mínútum og upp í 80 mínútur í senn. Allir bekkir fá verkefnatíma á móti sundskipulagi svo ekki myndast eyður í stundatöflu nemenda í tengslum við ferðir í íþróttahús. Til þess að koma á þessum breytingum var ákveðið að breyta fyrirkomulagi íþróttakennslu þannig að nemendur fara í íþróttatíma einu sinni í viku 60 mínútur í senn í stað tvisvar í viku í 40 mínútur. Í vetur verða ekki fastir tölvutímar en lögð áhersla á að nemendur hafi aðgang að tölvum í verkefnatímum og læri á tölvur í gegn-um verkefnavinnuna. Einnig mega nemendur hafa með sér eigin tölvur í skólann.
Tækifæri með auknu samstarfi
Í skólastefnu Grindavíkurbæjar er lögð áhersla á samstarf og tengsl þeirra aðila sem fara með málefni barna í Grindavík. Grunnskóli Grindavíkur er í samstarfi við fjölmarga aðila í okkar samfélagi. Kennarar skólans leita víða fanga og mörg samstarfsverkefni líta dagsins ljós í skólastarfinu. Samstarfið gerir okkur kleift að efla skólastarfið og auka gæði námsins. Mikilvægast er samstarf okkar við foreldra og þátttaka þeirra í skólastarfinu. Í samvinnu við foreldra er tækifæri til að búa nemendum öflugt lærdómssamfélag.
Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri
Greinin birtist fyrst í Járngerði, fréttabréfi Grindavíkurbæjar