Bólusetningar gegn hinni árlegu inflúensu stofn A og B eru hafnar á HSS, hægt er að bóka tíma núna. Bóka er virka daga milli 9 og 16.
Hverja á að bólusetja?
1. Alla einstaklinga eldri en 60 ára.
2. Öll börn og fullorðna sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna, og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
3. Starfsfólk heilbrigðisþjónustu og aðra sem daglega annast fólk með aukna áhættu.
4. Þungaðar konur.