Það er nauðsynlegt að kunna að búa til hollan og góðan mat. Krakkarnir í 5. bekk læra að búa til hollt og gott hrökkbrauð í heimilisfræðinni hjá Emmu. Uppskriftin sem þau nota heitir Hrökkbrauð Fríðu. Þau voru búin að baka og voru að ganga frá þessu fína hrökkbrauði í poka til að taka með heim þegar ljósmyndari mætti í tíma til þeirra. Allir voru mjög ánægðir með afraksturinn.
Smellið á MEIRA til að sjá fleiri myndir.