Frímínútur eru mjög mikilvægur tími barnanna í skólanum. Útivist er ómissandi fyrir alla ekki síst þá sem sitja á skólabekk. Við Hópsskóla er útisvæðið mjög skemmtilegt og vel hannað, stutt er einnig á íþróttasvæðið þar sem nemendur sækja bæði tíma á skólatíma og eftir skóla. Börnin eru á skipulögðu svæði en einnig mjög nálægt móanum og öllu sem hann hefur upp á að bjóða. Sparkvöllurinn, rólurnar, klifurgrindin og fleira eru góðir kostir fyrir kraftmikla krakka. Í september er oft gott veður og voru þessar myndir teknar á einum góðviðrisdeginum.