Stýrihópur frístunda- og menningarsviðs vill koma á framfæri kæru þakklæti til allra þeirra sem lögðu hönd á plóginn í Hreyfivikunni í Grindavík sem hér var haldin í annað sinn. Dagskráin var ótrúlega fjölbreytt með á sjötta tug viðburða. Aðsóknin var yfirleitt góð, bæði fyrirlestrar og opnar æfingar. Þá tóku grunnskólinn, leikskólarnir og Miðgarður þátt af fullum krafti með glæsilegri dagskrá sem og Gymheilsa, Metabolic, Jeanette Sicat og ýmsir fleiri. Hreyfivikan er hreyfiafl en í kjölfar hennar er m.a. skokkhópur kominn af stað og reglulegar bocciaæfingar fyrir fatlaða.
Sjáumst hress að ári en þangað til - verum dugleg að hreyfa okkar.