Í vetur eru mjög mörg börn í Skólaseli og eru nemendur nú dreifðir um allan skólann en ekki aðeins inni á því svæði sem hugsað er fyrir þessa starfsemi. Sem dæmi er tónmenntastofan, salurinn og aðrar skólastofur í notkun ásamt eiginlegri aðstöðu Skólasels. Þessi athafnasömu börn voru niðursokkin í skapandi verkefni undir stjórn Sylwiu Ostrowska.
Í Skólaseli er boðið upp á skóladagvist fyrir nemendur í 1. - 3. bekk. Þar gefst foreldrum tækifæri til að lengja veru barna sinna í skólanum eftir að kennslu lýkur til kl: 16:15 eða til kl: 17:00 ef lágmark 10 börn eru skráð að þeim tíma.
Markmið starfsins er að koma til móts við þarfir samfélagsins, foreldra og atvinnulífs með því að skapa börnunum öruggan og notalegan samastað að skóla loknum. Dagurinn skiptist í frjálsan leik úti og inni og skipulagt starf svo sem föndur, leiki ofl. Lögð er áhersla á friðsamleg og jákvæð samskipti barna og fullorðinna og að dvölin geti verið lærdómsrík og skemmtileg.
Lokað er í vetrar- jóla- og páskafríi einnig á árshátíðardegi og vorgleði. Á öðrum skóladögum, þar sem vikið er frá venjulegu skipulagi s.s. á öskudegi og þemadögum opnar Skólasel um leið og dagskrá lýkur. Lokað verður á starfsdögum í vetur.