Eldri borgarar athugið. Nýtt sex vikna námskeið verður fyrir eldri borgara í Gym heilsu og hefst á morgun. Á þriðjudögum verður leikfimistími kl. 10 og á fimmtudögum verður kennsla í tækjasal kl. 11. Einnig er í boði að sækja alla aðra tíma sem eru opnir í Gym heilsu á þessu tímabili. Tímabilið er frá 29. september til 10. nóvember.
Grindavíkurbær mun greiða námskeiðið niður um 3000 kr. í tilefni Hreyfivikunnar þannig að eldri borgarar greiða aðeins 3.000 kr. fyrir þetta frábæra námskeið.