Járngerður, fréttabréf Grindavíkurbæjar, kemur út í dag, bæði rafrænt og á pappír og verður blaðinu dreift í öll hús í dag. Þetta er þriðja tölublað ársins. Blaðið er efnismikið að vanda. Meðal efnis er núvitund í leikskóla og grunnskóla, grein um öflugt lærdómssamfélag í Grindavík, skipulagsbreytingar á félagsþjónustu- og fræðslusviði, fjallað um liðveislu sem er skemmtileg aukavinna, ævintýri hjá Hjólakrafti í sumar, umfjöllun um skipulagsmál í Grindavík, sagt frá heimsóknum til Svíþjóðar og Finnlands, pistill um efnahagsvélina Grindavík, viðtöl vegna ferðamannasprengjunnar í sumar og ýmislegt fleira skemmtilegt.
Ritstjóri Járngerðar er Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. Blaðamaður og ljósmyndari er Siggeir Fannar Ævarsson upplýsinga- og skjalafulltrúi.