Í Hreyfivikunni bauð íþróttafélagið NES upp á bocciaæfingu fyrir alla af Suðurnesjum í litla salnum í íþróttamiðstöðinni. Mætingin var prýðileg og komu keppendur af öllum Suðurnesjum sem sýndu frábær tilþrif. Ákveðið hefur verið að hafa bocciaæfingar fyrir fatlaða einu sinni í viku hér eftir, á fimmtudögum kl. 17:00 í íþróttamiðstöðinni.