Útinám er kennsluaðferð sem við í Grunnskóla Grindavíkur höfum áhuga á að tileinka okkur í ríku mæli.
Útinám er náms- og kennsluaðferð sem leggur áherslu á nám undir berum himni þar sem öll skynfæri eru virkjuð með þátttöku í beinum upplifunum og reynslu. Markmiðið er að stuðla að alhliða þroska manneskjunnar og skapa tengsl milli einstaklingsins, náttúrunnar og samfélagsins.
Útinám er stundum flokkað í tvo megin hluta: Ævintýranám og umhverfisnám.
Afhverju er útinám mikilvægt?
Það eykur námsaðlögun og er einstaklingsmiðað.
Námið er merkingarbært og gerist í raunverulegum aðstæðum.
Útivistin stuðlar að betri heilsu; líkamlegri, andlegri og félagslegri.
Tengsl nemenda og kennara styrkist og það bætir bekkjarandann.
Útinám skapar jákvæða upplifun og eykur umhverfisvitund.
Leikir barnanna verða fjölbreyttari - hugmyndaríkari og skapandi, sem bætir málnotkun og samvinnuhæfni.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á dögunum í náttúrufræði hjá 5. bekk.