Hreyfivikan heldur áfram. Í morgun var opin tími í Metabolic í íþróttahúsinu og í háeginu er opinn bumbubolti fyrir 30 ára og eldri. Í dag mætir Samúel Örn Erlingsson sjónvarpsmaður og íþróttakennari í Miðgarð kl. 14:00 og kynnir rannsókn sína um líkams- og heilsurækt aldraðra en hann gerði sjónvarpsþætti sem vöktu mikla athygli. Samúel Örn er með afbrigðum skemmtilegur sagnamaður og eru eldri borgarar hvattir til að mæta á fyrirlesturinn.
Blóðþrýstings- og blóðsykursmælingar að loknum fyrirlestrinum fyrir þá sem vilja.