Hljómsveitin Brimróður frá Grindavík var krýnd sigurvegari í lagakeppni sem haldin var á Rás 2 til heiðurs Magnúsi Eiríkssyni í tilefni af sjötugsafmæli hans. Sveitin gerði sína eigin útgáfu af laginu Þorparinn sem heillaði bæði dómnefnd og hlustendur.
Fjöldi laga barst í keppnina og voru tíu þeirra valin í úrslit. Hlustendur gátu þar kosið um besta lagið og höfðu þeir helmings vægi við dómnefnd, sem Magnús Eiríksson sat sjálfur í. Að lokum var það skemmtileg útsetning Brimróðurs á Þorparanum sem þótti best. Sveitin hlýtur að launum glæsilega vinninga frá Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar, Kaffi Rósenberg og eintök af nýja Magga Eiríks safninu frá Senu.
Í öðru sæti var Guðný Lára Gunnarsdóttir, sem tók lagið Vegurinn heim, og í þriðja sæti var Jónína Björg, með lagið Komu engin skip í dag.