Valáfanginn Pæjutímar er einu sinni í viku í Grunnskóla Grindavíkuur. Leiðbeinandi á þessu námskeiði heitir Rósa Kristín Bjarnadóttir og þar er sko ýmislegt skemmtilegt brallað. Í síðasta tíma voru þær að búa til konfekt og á meðfylgjandi mynd er hópurinn með afurðirnar sem þær voru búnar að pakka fallega inn í sellófan. Þær gera líka ýmislegt fleira eins og t.d. skartgripi og búa til og prófa andlitsmaska og varagloss. Rannveig Guðmundsdóttir kennari kom í heimsókn í einn tímann og leiðbeindi þeim í förðun. Mjög skemmtilegur áfangi segja stelpurnar.