Í gærkvöldi mættu 12 ferskir skokkarar á aldrinum 28-55 ára, 9 konur og 3 karlmenn, og skokkuðu hver á sínum hraða, undir stjórn Birgittu Káradóttur, í tilefni HREYFIVIKUNNAR. Mikil ánægja ríkti með þetta framtak hjá Birgittu og hefur verið ákveðið að stofna skokkhóp undir nafninu HLAUPAHÓPUR GRINDAVÍKUR. Búið er að skipuleggja hlaupaæfingar tvisvar í viku til að byrja með. Búið er að stofna facebookhóp fyrir þetta flotta fólk og eru nú þegar 36 skráðir meðlimir. Skipulagið á skokkhónum verður eftirfarandi:
Samkomustaður: Hittumst í sundlauginni við gamla innganginn.
Hvenær: Á miðvikudögum kl 19:45 og miðað við að hægt verði að fara í pott og sturtu á eftir fyrir þá sem vilja.
Á sunnudögum klukkan 10:30 og miðað við að hægt verði að fara í pott og sturtu á eftir fyrir þá sem vilja.
Nánari upplýsingar er að finna á Facebook (hópurinn heitir hlaupahópur Grindavíkur). Slóðin er:
https://www.facebook.com/groups/527740607261582/