Hin goðsagnakennda blúshljómsveit verður með tónleika á Salthúsinu, föstudaginn 25. september kl: 21:00. Aðgangseyrir er 2.500 krónur og tilboð verður á stórum á krana á 500 kr.
Á Facebook síðu tónleikanna segir:
„Vinirnir eru: Halldór Bragason gítarleikari og söngvari, Guðmundur Pétursson gítarleikari, Ásgeir Óskarsson trommuleikari og Jón Ólafsson bassaleikari.
Tökum vini með sem ekki hafa komið áður á blúskvöld . Við sem stöndum að starfseminni sem blús tengist, leggjum áherslu á að blúsinn miðlar friði, samkennd og skilningi á lífi og örlögum mannsins. Blúsinn er öflugt vopn gegn kynþáttahatri og skapar andrúmsloft mannkærleika hvar sem hann heyrist. Hann er einlægur og hittir í hjartastað þeirra sem við hlustir leggja.“