Nóg er um að vera í dag, miðvikudaginn 23. september í Hreyfvikunni í Grindavík. Þar má nefna opna tíma í zumba og kundalinijóga, skokkhópur Birgittu fer af stað, Solla stirða kemur í heimsókn og stólaleikfimi, línudans og zumba fyrir eldri borgara. Dagskrá dagsins:
Leikskólar og Hópsskóli:
Solla stirða kemur í heimsókn
Kl. 17:30 Kvennó:
Blandað Zumba Fitness og Kids
Jeanette F. Sicat með blandaðan Zumba Fitness og Zumba Kids tími fyrir allan aldurshóp. Opinn kynningartími fyrir börn og eldri, tiltalið að kynna sér Zumba.
Kl. 19:45 Sundlaugin
Skokkhópur Birgittu
Er áhugi á skokkhóp í Grindavík? Skokkaður léttur hringur í umsjá Birgittu Káradóttur og farið í sund á eftir og tekið spjall um framhaldið. Allir áhugasamir velkomnir.
Lagt verður upp með að ganga, skokka eða hlaupa hver á sínum hraða frá sundlauginni, gamla inngangi, í átt að Þorbirni og að 15 mínútum loknum er snúið við og haldið sömu leið til baka. Þannig næst samtals 30 mínútna gangur, skokk eða hlaup í góðum félagsskap.
Kl. 20:00 Hópsskóli
Jógatími - opinn fyrir alla
Arnbjörg K. Konráðsdóttir kundalinijógakennari með jógatíma og gong slökun. Fyrir alla, byrjendur og þá sem eru lengra komnir. Ókeypis aðgangur. Mikilvægt er að taka með sér TEPPI OG PÚÐA í tímann, þeir sem eiga jógadýnur taki þær einnig með.
ELDRI BORGARAR:
Miðvikudaginn 23. sept. og föstudaginn 25. sept. Stólaleikfimi í Miðgarði fyrir eldri borgara kl.
10:00.
Miðvikudaginn 23. sept. Línudans fyrir eldri borgara í Miðgarði kl. 16:00.
Miðvikudaginn 23. sept. Zumba Gold hjá Jeanette í Kvennó kl. 10:00. Zumba Gold er m.a. sniðið
með þarfir fólks með skerta hreyfigetu að leiðarljósi. Allir velkomnir.