Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Átak til atvinnusköpunar og er frestur til að skila inn umsóknum til kl. 12 á hádegi mánudaginn 28. september. Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu sem hefur það að markmiði að styðja við þróun nýsköpunar á fyrri stigum og að styðja við undirbúning markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu.
Nánar má lesa um verkefnið og senda inn umsókn hér.