Það er ýmislegt skemmtilegt á dagskrá í dag í Hreyfivikunni, m.a. fyrirlestrar og opið í hóptíma hjá Gymheilsu. Þá er ókeypis í sund í dag. Vakin er athygli á fyrirlestrumum hugarþjálfun íþróttafólks sem sérstaklega er ætluð fyrir 4. bekk og eldri í Gjánni kl. 18:00. Þá koma fulltrúar UMFÍ í heimsókn í dag í Miðgarð. Dagskrá Hreyfivikunnar í dag:
Kl. 18:00 Gjáin
Hvað þarf til að ná árangri sem íþróttamaður? Hvað er árangur? Góð ráð fyrir íþróttafólk framtíðarinnar.
Pétur Guðmundsson körfuboltaþjálfari og markþjálfi og Þorvaldur Daníelsson hjá Hjólakrafti og þjálfari með fræðsluerindi um hvernig hægt er að undirbúa sig andlega í íþróttum og setja sér markmið og vinna eftir þeim. Fyrirlestrarnir eru fyrir 4. bekk og eldri.
Ókeypis í hóptíma hjá Gymheilsu
Kl. 10:00 Morgunhressing. Umsjón: Arna Björnsdóttir
Kl. 17:10 Tabata. Umsjón Sandra Dögg Guðlaugsdóttir
Kl. 18:45 Jóga. Umsjón: Harpa Hallgrímsdóttir.
Kl. 11:30 Grindavíkurkirkja
Hreyfing fyrir foreldra og börn
Á Foreldramorgni í kirkjunni verður hreyfing fyrir foreldra og börn í umsjá Örnu Björnsdóttur
Fyrir eldri borgara:
Þriðjudaginn 22. sept. kl. 13:00-14:00 Boccia fyrir eldri borgara í íþróttamiðstöðinni
Þriðjudaginn 22. sept. Blóðþrýstings-og blóðsykursmælingar kl. 13.30-14.30 í Miðgarði
Þriðjudagurinn 22. sept. Kynning frá UMFÍ á íþróttum eldri borgara - létt hreyfing. kl. 15:00 í
Miðgarði.
Þriðjudaginn 22. sept. og fimmtudaginn 24. sept. Vatnsleikfimi fyrir eldri borgara kl. 16:00.
Þriðjudaginn 22. sept. Gönguhópur stofnaður kl. 10:00. Mæting í Miðgarði.