Hreyfivikan er komin á fullt. Í gærkvöldi var afar áhugaverður fyrirlestur í Gjánni þar sem þrír Grindvíkingar sem eiga sameiginlegt að hafa farið sínar eigin leiðir í heilsueflingu í Grindavík, sögðu sögu sína og svöruðu spurningum. Þetta voru þau Helgi Jónas Guðfinnsson eigandi Metabolic, Halldóra Halldórsdóttir jógakennari og Harpa Hallgrímsdóttir jógakennari.
Afar áhugavert var að heyra framsögur þremenningana sem eiga það sameiginlegt að hafa farið út í heilsuræktina og kennsluna fyrir hálfgerða tilviljun.
Efri mynd, frá vinstri: Helgi Jónas Guðfinnsson, Harpa Hallgrímsdóttir og Halldóra Halldórsdóttir.
Hádegisskokk bæjarstjórans: Róbert Ragnarsson bauð upp á hádegisskokk í gær, með honum er hinn síungi Hafsteinn Sæmundsson.