Hreyfivikan hófst í dag og vekjum sérstaka athygli á fróðlegum fyrirlestrum í kvöld Gjánni kl. 20:00. Þrír Grindvíkingar sem eiga sameiginlegt að hafa farið sínar eigin leiðir í heilsueflingu í Grindavík, segja sögu sína og svara spurningum: Helgi Jónas Guðfinnsson, Halldóra Halldórsdóttir og Harpa Hallgrímsdóttir. Allir velkomnir. Yfirskrift fyrirlestranna er Heilsan okkar allra.