Á degi íslenskrar náttúru, þann 16. september síðastlinn, fékk heilsuleikskólinn Krókur Grænfánann afhentan í fjórða sinn. Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja menntun til sjálfbærni í skólum. Skólar ganga í gegnum sjö skref í átt að aukinni umhverfisvitund og sjálfbærni. Þegar því marki er náð fá skólarnir að flagga Grænfánanum til tveggja ára og fæst sú viðurkenning endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Krókur og Laut, báðir leikskólar Grindavíkur, flagga Grænfánum við sínar starfsstöðvar.
Í fréttatilkynningu frá Króki segir eftirfarandi:
„16. september fengum við afhentan Grænfánann í fjórða sinn á Degi íslenskrar náttúru. Katrín Magnúsdóttir frá Landvernd kom og afhenti okkur skilti, veitti okkur alþjóðlega viðurkenningu fyrir góða frammistöðu í menntun til sjálfbærrar þróunar og fyrir að leggja okkar af mörkum til þess að efla og bæta umhverfismál innan skólans og í nærsamfélaginu.
Farið var í skrúðgöngu í Kyrrðardalinn okkar þar sem athöfnin fór fram. Hátíðin tókst í alla staði mjög vel og áttum við saman yndislega stund í náttúrunni. Við þökkum foreldrum og öðrum gestum fyrir frábæra mætingu.“