Umhverfisvernd er ofarlega á baugi hjá nemendum í 6. bekk og mun áherslan hjá þeim vera á náttúruvernd og umhverfismál fram að áramótum. Undanfarið hafa nemendur verið að fræðast um mengun í hafinu vegna plasts sem ekki eyðist í umhverfinu og mikilvægi þess að farga t.d. spilliefnum á viðeigandi hátt hjá endurvinnslustöðvum.
Um daginn fóru nemendur í 6.KM í vettvangsferð þar sem tilgangurinn var að greina það rusl sem þau fundu úti í náttúrunni. Töluvert var af rusli á stuttri leið þeirra niður að Leikskólanum Laut og upp Ásabraut. Áberandi mest var því miður plast, tappar, brúsar og sogrör. Á meðfylgjandi myndum má sjá það rusl sem fannst í stuttum en skemmtilegum könnunarleiðangri nemenda.