Grindavíkurbær auglýsir eftir starfsmanni í 60% starfshlutfalls til að sinna barnavernd og sérverkefnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna með einstaklinga og fjölskyldur, vinnsla barnaverndarmála, PMTO-meðferð fyrir fjölskyldur og einstaklinga, sem og námskeiðahald.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun er nýtist í starfi
PMTO meðferðarmenntun
Víðtæk reynsla í vinnslu barnaverndarmála
Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi á teymisvinnu
Umsókn ásamt ferilskrá skal berast eigi síðar en 30. september 2015 á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62, 240 Grindavík. Launakjör er samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttafélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri (nmj@grindavik.is/420-1100)