Fyrsta kóræfing Barnakórs Grindavíkur var haldinn í vikunni en kórinn er samstarfsverkefni tónlistarskólans, Grindavíkurkirkju og Grunnskóla Grindavíkur. Kórinn mun taka þátt í ýmsum verkefnum í vetur. Myndband frá fyrstu kóræfingunni má sjá á Facebooksíðu Tónlistarskólans með því að smella hér.
Í vetur verða æfingar hjá Barnakór Grindavíkur á fimmtudögum kl. 14. í Tónlistarskólanum. Strákar og stelpur í 4. 5. og 6. bekk sem hafa gaman af söng eru velkomin í þennan skemmtilega félagsskap.
Kórstjórar eru Rósalind Gísladóttir og Bjartur Logi Guðnason
Skráning er á heimasíðu Tónlistarskólans/umsóknir eða í síma 420-1130