Í tilefni af Hreyfiviku UMFÍ hafa fjölmörg sveitarfélög á landinu skorað á hvert annað í sundkeppni. Keppnin fer fram dagana 21.-27.september, báðir dagar meðtaldir. Þátttakendur skrá á eyðublað sem liggur frammi í afgreiðslu sundlaugar hversu marga metra er synt á hverjum degi. Sundæfingar og skólasund telst ekki með. Skráðu þínar ferðir og taktu þátt fyrir þitt sveitarfélag.
Grindvíkingar eru hvattir til þess að taka þátt og skrá sína sundspretti í afgreiðslu íþróttamiðstöðvarinnar.
Allar nánari upplýsingar á www.umfi.is