Sashana Carolyn (Pete) leikmaður kvennaliðs Grindavíkur í knattspyrnu heimsótti 9. og 10. bekki skólans og ræddi við nemendur um það hvernig það er að vera unglingur á Jamaica þaðan sem hún er.
Nemendur spurðu hana um ýmislegt, eins og t.d. útivistartíma unglinga sem miðast við að börn og unglingar séu komin heim fyrir myrkur eða um sexleytið seinnipartinn, fótboltann og fleira. Hún dásamaði aðstöðuna til íþróttaiðkunar í Grindavík sem er mörgum gæðaflokkum yfir því sem almennt gerist í hennar landi þar sem fátækt er ríkjandi.