Horn á höfđi í bíó

  • Fréttir
  • 17. september 2015

„Þetta er ævintýramynd í orðsins fyllstu merkingu. Það er gaman að þetta séu ekki bara allt glæpamyndir og ofbeldi í sveitinni," segir Kristófer Dignus sem hlaut nýlega styrk úr kvikmyndasjóði ásamt handritshöfundunum Bergi Þór Ingólfssyni og Guðmundi Brynjólfssyni til þess að gera bíómynd úr barnasöngleiknum Horn á höfði, en þeir Bergur og Guðmundur skrifuðu handritið að söngleiknum sem Grindvíska atvinnuleikhúsið frumsýndi 2009 í Grindavík og hlaut góðar viðtökur og sjálfur hefur Kristófer leikstýrt sjónvarpsþáttunum Fólkið í blokkinni.

Hann segir myndina verða sannkallaða ævintýramynd í stíl Harry Potter en með íslensku ívafi enda er handritið byggt á íslenskum fornsögum.

„Sagan fjallar um unga vini, Björn og Jórunni sem lenda í hremmingum þegar forn sáttmáli manns við náttúruna er rofinn og það fer í gang atburðarás sem stefnir landi og þjóð í hættu og þau eru eina fólkið sem er með lykilinn að þessari gátu," segir Kristófer um söguþráðinn.
„Björn vaknar upp einn morguninn með horn á höfðinu og þau fara að reyna að átta sig á því hvernig hann losnar við þau og þau átta sig á því að þau þurfa að leysa úr þessum náttúrusáttmála," segir Kristófer en við það að sáttmálinn er rofinn vakna allskyns vættir úr dvala og valda talsverðum usla.

Kristófer segir þá félaga að vonum sátta við styrkinn og nú fari önnur vinna á fullt skrið.
„Handritið er komið á fullt, af því við fengum grænt ljós. Það eru margir sem sækja um og ekki margir sem fá þannig við erum mjög sáttir," segir hann. Eftir er að finna leikara til þess að fara með hlutverk í myndinni.

„Mesta áskorunin er að finna krakkana, það vegur mest og þyngst. Þau verða í öllum senum í myndinni," segir Kristófer að lokum.

Vísir.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir